Friday, May 12, 2006
Posted at 3:14 pm by arney
Monday, March 27, 2006
og viti menn... the thing is alive! Já ég hef ákveðið eftir að hafa fjárfest í tölvu nokkurri á dögunum að nú væri kominn tími á ný til að deila með heimsbyggðinni því sem að á daga mína drífur, sem er að sjálfsögðu sem endra nær einstaklega viðburðaríkt! Ég nenni þó ekki að þylja upp það sem að hefur gerst seinustu mánuði því það er ekki það spennandi... enda var ég kornung þá að aldri! Eftir að vera komin langt á leið í þrítugt sé ég heiminn orðið í öðru ljósi og hef einsett mér að reyna að bæta það sem misfarist hefur! hmm... nehh!!!
Talandi um það þá vil ég þakka öllum þeim sem sendu mér ástar- og samúðarkveðjur á afmælisdaginn minn! Ég er nú einu ári nær Gullna hliðinu en hef einstaka trú á því að tuttugasta og þriðja afmælisárið mitt komi til með að verða nokkuð gott!
Þó svo ég hafi nú alls ekki gefið það opinberlega út þá voru s.s gjafir og blóm afþökkuð og stóð fólk sig vel í þeím málum, nema ástkær bróðir minn stóðst ekki mátið og færði mér úrvals 590.- freyðivín frá vinnustað sínum! takk fyrir það!... það hefði nú samt mátt leggja meiri pening í tappann því þegar klukkan sló 12 átti sko aldeilis að skála en fór ekki betur en svo að tappinn brotnaði og samkvæmisgestir leituðu í óðaönn eftir tappatogara til að hægt væri að væta kverkarnar! Það gekk þó með ágætum og endaði hópurinn í miðbæ reykjavíkur þar sem að dansað var frá á rauða nótt!
Annars er næsta helgi farin að heilla eda koma austfirðingar til með að safnast saman á Players á Austfirðingaball til að fagna gáfum, myndarleika og fyndni þessa einstaka kynstofns! og að sjálfsögðu látum við Kelzie okkur ekki vanta og vonumst eftir að sjá sem flesta!!!!
Elsa - 23 -
Posted at 4:38 pm by arney
Friday, October 21, 2005
þá skal pistill ritaður...
Golf kemur frá helvíti, en þar sem að ég er nú væntanlega á leiðinni þangað einhverntíman þá verð ég að segja að það er nú helvíti skemmtilegt! Verð þó að taka vel á og æfa mig fyrir HellOpen. Ótrúlega misjafn samt eitthvað hvernig manni gengur, stundum myndi Tiger sjálfur Wood stinga hausnum í holu útaf óstjórnlegum hæfileikum mínum en í flestum tilvikum gengur bara ekkert svo vel. Var einmitt að koma úr Básum með bláar og marðar hendur eftir mikil átök sem skiluðu sér aldrei út fyrir 100 metrana! Merkilegt! Þó eg sé nú ekki vön því þá gafst ég á endanum upp og gaf samspilurnum mínum restina af kúlunum og ákvað að það væri nú bara gáfulegra að standa til hliðar og hlæja af þeim!
Elsa -golfari-
Posted at 8:44 am by arney
Tuesday, September 27, 2005
Var eins og svo oft áður að vafra um á Veraldarvefnum þegar ég rakst á stórundarlegan hlut! Eitthvað sem kallast freknu-eyðing!!! WHOOOT?
Sjálf státa ég nú af andskoti mörgum freknum og get ekki sagt annað að ég sé nú bara nokkuð stolt af þeim! Sýndi þeim nú kannski ekki alveg eins mikinn áhuga á gelgjuskeiðinu en maður vex nú uppúr ruglinu og í dag er tel ég sjálfa mig til freknusafnara af mikilli einlægni. Að mínu mati, ekki bara vegna þess að ég er freknufés, þá finnst mér fullt af undurfögrum freknum gefa andliti fólks meiri karakter en alveg freknulaust fés. Miklu hraustlegra!
Þið sem lesið þetta eruð vinsamlega beðið um að commenta um ykkar álit á freknum til að sanna eða afsanna hversu fáránleg þessi blessaða freknueyðing er!!!
Posted at 2:35 pm by arney
Monday, September 26, 2005
Eftir að hafa verið klukkuð, tók ég langan tíma í að finna út hvað þetta klukk fyrirbæri væri sem að virðist vera að tröllríða bloggheiminum í dag! Eftir þó nokkrar rannsóknir komst ég að því og get nú ekki verið minni manneskja en fundið 5 tilgangslausar staðreyndir um sjálfa mig!
1. Ég státa af 5 glæsilegum örum í andlitinu eftir nokkrar byltur í barnæsku! Var víst örlítið örari og meiri brussa en gengur og gerist. Eitt á enninu, annað í vinstri augabrún, og hvorki meira né minna en 3 á vörunum!
2. Ég gnísti víst óþarflega mikið tönnunum í svefni.
3. Ég þoli ekki að láta narta í eyrnisnepplana á mér eða anda nálægt eyrunum á mér!
4. Ég upplifi svona ca. 50% fullnægingu við hreinsa eyrun með eyrnapinnum. Hreinsa því eyrun óþarflega oft og kaup á eyrnapinnum eru við það að rjústa fjármálum heimilissins.
5. Hef lúmskt gaman af því að gera það sem ég má alls ekki gera!
Skammast mín ekki fyrir neitt af þessu....
Takk fyrir, og í staðinn fyrir þetta vil ég klukka hana Vallý mína, Big Jay og Björt!
Posted at 10:50 am by arney
Sunday, September 25, 2005
Eins og mörg ykkar vita er ég þess heiðurs aðnjótandi að vinna í hverfisverslun nálægt heimili mínu!Alltaf sama fólkið sem að verslar þarna, voða heimilislegt, og maður kippir sér nú ekki mikið upp við að afgreiða forsætisráðherrann um vöffludeig og 2 sviðakjamma. Verð ég þó að játa að sjáldan hef ég, þennan 2 og hálfa vetur sem að ég unnið í þessari ágætu verslun, hitt fyrir jafn skemmtilegan hóp af fastakúnnum! Oftar en ekki hef ég þurft að hlaupa af kassanum, inní kjöt til að þurfa ekki skammarlega að skella uppúr fyrir framan þessa ágætu fastakúnna mína.
Fyrst má nefna Miss Piggy, en aumingja konan minnir óneitanlega á svín, ekki vegna þvermáls heldur segir andlitsfallið, þó sérstaklega nefið og örlítill skeggvöxtur allt um þetta viðnefni sem hún hefur fengið hjá mér! Þó að það sé nú ekkert til að tala um og ekkert verra að líkjast Miss Piggy, kom það svo skemmtilega fyrir um daginn að þegar hún ætlar að rétta mér kortið sitt þarf hún eitthvað að sjúga uppí nefið en í stað eðlilegs hljóðs þá hrýnir hún alveg eins og svín! Ég stirðna upp, þykist missa kortið í gólfið, fer undir borð og reyni að hemja hláturinn. Agalega vandræðalegt! Er þó fullviss um að þetta sé hin ágætasta kona!
Sá næsti mun vera líka hinn ágætasti maður. Á þó við þann erfiðleika að stríða að hann stamar nokkuð mikið! (ekkert að því að stama þó og þekki ég fullt af góðu fólki sem stamar) en ekki nóg með að hann stami greyið heldur er hann smámæltari en 6 ára tannlaus stelpa! Einhverra hluta vegna hefur hann ákveðið einn daginn að byrja að reykja, sem er náttúrulega nógu slæmt, en hvað kom fyrir þegar að hann ákvað að tegundin skuli verða Ssssalemm Ssssliiim Lllightttsssss. Hvað var maðurinn að hugsa? Hefði ekki verið auðveldara að velja Kool!
En ég vil þó ekki fjalla um fleiri í þetta skiptið því mamma sagði alltaf að það væri ljótt að gera grín af öðrum og ég neita fara til helvítis!
Annars var helgin fín, tókum Actioanary á laugardaginn, þar sem við Bergmann sýndum snilldar leikhæfileika okkar, og tókum Vallý og Örn Inga í nefið! Rúst! Spurning hvort að við gætum ekki keppt í þessu og grætt pening! Eða bara setja upp show!
En ég ætla að fara að nýta nammidaginn minn, og troða í mig ostum og kexi! Eins og Patrekur systursonur minn myndi orða það. Ég ELSKA osta og kex! Jomm...
Elsa Arney -búðardama-
Vil svo koma framfæri hamingjuóskum til Magna og Eyrúnar með kútinn!
Posted at 1:50 pm by arney
Tuesday, January 25, 2005
Helgin er liðin og framundan er heilt ár í næsta Þorrablót... ó hve langt er að bíða!!
En stórkostlegt skemmtun var það eins og vanalega... étið og drukkið eins og svín, dansað mörgþúsund kílómetra...
Eins og til stóð tókst mér slá út fyrri ár í drykkju.. en það var Helgi Hlynur frændi minn og uppáhalds dansfélagi sem tókst að ná ógeðslegheitunum sem lofað var þetta kvöld, en eftir margra ofurlaga danssyrpu tók utan um hausinn á mér og strauk mér upp bringuna á sér... þið sem þekkið Helga vitið hvernig hann er eftir svona törn!
Ég vil þó þakka honum Helga Hlyni mínum kærlega fyrir stórkostlega dansa... undanfarin ár höfum við Helgi átt í danskeppni hörku, hæfileika og úthalds... staðan eftir seinasta blót var 125-125... en eftir tilþrif þessa blóts ákváðum við að segja stöðuna jafna, eða 147-147... höfum þó hvorugt hugmynd um hvernig talning stiga fer fram! Ég reyndi að ná forustu með því að taka Orminn góða... en dugði ekki til!! ;) Annars slógum við víst gleraugun af Þresti í látunum og biðst ég innilegrar fyrirgefningar á því!
Nefndinni, my favorite band, vil ég þakka kærlega fyrir gott ball en það hefði nú verið gaman að heyra Easy Living þarna einhversstaðar! Strákar.. hvað klikkaði??? Annars brilliant as always!!
Anyways...
Elsa - meistari dansanna-
Posted at 2:23 pm by arney
Wednesday, January 19, 2005
Ef ég hef ekki tekið það fram áður þá bruna ég um göturnar á stórkostlegum bíl... Hundgamalli en ótrúlega sprækri
Lödu Samara... veit ekki árgerðina en það er ábyggilega alveg hundlangt síðan henni var skellt á götur klakans! Við Ladan höfum nú í frostinu í höfuðborg austurlands, útbúið sjálfvirkan fellibúnað en afturhurðin bílstjóramegin á það til að opnast þegar henni dettur það í hug. Þetta verður prófað formlega á sunnudaginn þegar að Kárahnjúkar koma til bæja... plenty of people labbandi og veit ekki hvað bíður þeirra!
Ég vil enn og aftur þakka Kára fyrir rauðvínsteitið um daginn... dásamlega gott rauðvín frá ´95! Ekki slæmt það! Til að bæta það upp Kári minn.. mun ég taka það fram aftur að ég á 8 ára gamlan Beck´s í gleri heima á Borgarfirði og munum við taka hann upp við hátíðlegt tilefni! Ekki slæmur árgangur það!
Elsa -Expert í góðum vínum-
Posted at 2:00 pm by arney
Tuesday, January 18, 2005
Ég hef nú fundið fyrir því hvernig það er að brenna lifandi... skellti mér í ljós áðan og smurði á líkamann kremi með 3földum hita... lagðist í bekkinn og eftir nokkrar mínútur logaði húðin og snarkaði í beinunum.... var að farin að sjá ljósið þegar ég skyndilega sneri tilbaka við undurfagran hljóm bjallna... 3 píp og bekkurinn slökkti á sér... ! Mæli eindregið ekki með þessu en eins og sannri hefðardömu sæmir skrapp ég fram í afgreiðslu og keypti mér 3 stg bruna í bréfi!
Elsa -lifir á ystu nöf-
Posted at 3:13 pm by arney
Monday, January 17, 2005
þorrablót.... þorrablót....
Jamm... Sunny er ennþá syrgður hérna í litla hjartanu mínu og sökum veðurs hef ég enn ekki getað farið og vitjað hans! Hann birtist mér þó í draumi í nótt, sagði mér að ég þyrfti að halda áfram og vaknaði ég í morgun og það var eins og þungu fargi hafi verið af mér lyft! Sunny minn hefur það gott, syndir í olíu og búin að fá nýja legu!
Annars var helgin fín... fór út á föstudaginn.... endaði seinasta kortér næturinnar á
16 ára í Valaskjálf balli þar sem lille sös var snúið í ótal hringi! Ég hafði nú reyndar lofað sjálfri mér að stíga aldrei fæti inná á 16 ára ball eftir það seinasta... ái.... en loforð eru til að svíkja þau! Right?
Settist í besta tilgangslausasta rauðvínssötri sem ég hef bara smakkað hjá Kára mínum Jósefs á laugardaginn... ekkert að gerast svo við ákváðum að bara sletta úr klaufunum! Stórgott kvöld og býð spennt eftir dauðu kvöldi svo við getum endurtekið leikinn!
Svo bíður mín mjög svo spennt eftir næstu helgi því þá mun leið okkar geðklofasystra liggja í Fagra Fjörðinn kæra... Dararamm... þar sem verður tekið duglega á því á
ÞORRABLÓTI BORGFIRÐINGA.
... ó hvað litla hjartað mitt slær ótt úr spenningi bara við tilhugsunina! Ég er búin að lofa sjálfri mér að slá öll seinustu ár út í ógeðslegheitum í drykkju og dúndrandi tilþrifum á dansgólfinu! Erfitt en markið skal sett hátt!!!

Elsa -á leiðinni á blót-
Posted at 3:30 pm by arney