...elsa arney...
msn: arney_@hotmail.com
   


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Sunday, January 09, 2005
Sorgarstund...

Það er ekki annað hægt að segja en að sorgin hafi barið á dyr hjá mér um helgina... en ástin hann Sunny er látin... aðeins 12 ára að aldri í blóma lífsins.

Þannig er mál með vexti að ástmaðurinn og elskan hann Sunny voru á leiðinni suður til Reykjavíkur þegar þeir mættu ljótum druslubíl og klesstu þeir saman! Mér líður reyndar betur með þá staðreynd að Sunny hafi látist samstundis enda gekk gekk hjartað lengst inní hanskahólf.

En það sem skiptir að sjálfsögðu máli er að Sunny stóð eins og allir sannir Thundermobílar undir nafni og skilaði því sem að skiptir mestu máli í heilu lagi heim sem er náttúrlega ástmaðurinn sjálfur, bara smá aumur og stirður greyið! Takk fyrir það elskan, þú fórnaðir þér fyrir heildina!

Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en ég veit að Sunny hefði viljað að sendur yrði smá bjór, svona fyrir nánustu aðstandendur ;)
Annars mun leið mín sennilega liggja til Sauðárkróks og bera kennsl á flakið þar sem að Sunny bíður útfarar sinnar, þar mun ég votta honum seinustu virðingu mína með því að rífa undan honum glænýju nagladekkin, geislaspilara og fleira sem elskan mín passaði uppá fyrir mig. 
Mig vantar endilega einhvern til að koma með mér því þetta á eftir að vera tilfinningaþrungin stund og veitir ekki af stuðningi við svona aðstæður...  ég hef aldrei enst svona lengi með nokkrum karlmanni, 3 ár... og var ekkert að fara að gefa uppá bátinn enda höfum við átt margar góðar stundir saman... en hann fékk greinilega köllun... hans er þarfnast einhversstaðar í betri heimi!

Anyway...
Elsku litli bílinn minn.... RESPECT!!!!

Elsa - syrgjandi-

Posted at 2:53 pm by arney
Komdu skoðun þinni á framfæri!  

Saturday, December 11, 2004
Súrt...

Já.. en og aftur eins og í öllum prófavikum þá hef ég náð mér í kvef... sem er svolítið undarlegt í þetta skipti því núna er ég ekki einu sinni í prófum... hlýtur að vera einhverjir samverkir með vinunum því ligg núna ein heima í Fellabænum með klósettpappírinn og hóstasaftið mér við hlið... umm... sleezy... og þétt vafin inní teppi með trefil upp fyrir eyru!

Átti stórskemmtilegan dag í vinnunni... ... hausinn sjálfsagt í kring um 10 kíló þessa stundina og sjónin ekki alveg að gera sig!  eins og tívolíferð...
ætla rétta vona að ég komist í vinnu á morgun því þá er Ítaladagur... húrra...:/  seinast þurftum við að stoppa slagsmál... hvað ætli gerist núna.. spennandi!!!

Vinnuvikan hefur verið helguð vísindastarfsemi þar sem að ég hef verið að þróa hinn ultimate Sleezy borgara... hafa nokkrir fengið að prófa og fáein skipti þurfti ég að beita hjartahnoði vegna sleezyleikans... sem gefur mér vísbendingar að ég sé á réttri leið!  Borgararnir munu bera nafnið  Mr. SleEzy og SleEzy Ultra... ??? Ultra verður að sjáldsögðu tvöfaldur og meira að segja mjög áreiðanlegar heimildir að færustu menn hafi átt erfitt með hann... (hum....Örn Ingi... hum hum..) ;)
Hver segir svo að ég hafi ekki nóg fyrir stafni hérna heima!??

Anyways...
Þarf að fara að snýta mér...

Elsa  - sjúkur einstaklingur -


Posted at 11:15 am by arney
(1) höfðu skoðun á málefninu!  

Tuesday, December 07, 2004
Lag og texti var í höndum Elsu Arneyjar...

Helvítis útvarpið í Shell er með einhverja ömulegan vírus í sér þar sem að hún vill aðeins spila FM 957 og mín litla skapgerð á alveg til byrja að finna fyrir pirringi svona um miðja vakt.  Eins og hvert manns barn, sem á eins útvarp og Shell á, hefur heyrt Everlasting love ( úr Briget Jones) og Endurfundi með þeim félögum mínum í svörtum fötum hljóma daginn út og inn!

Ég bætti þó um betur og í stað þess að sætta mig við ástandið hljómar nú Everlasting Love í útgáfu U2 og einhversstaðar gróf ég upp gömlu góðu Upplyftingu sem gerðu lagið ódauðlegt á sínum tíma.. Þó svo þetta sé nú kannski ágætt hjá tuskudrengjunum þá slær ekkert Upplyftingu út, enda fyrir þá hálfvita sem ekki vita, þá er Traustur vinur eitt að þeirra bestu smellum.  Enda stórkostleg hljómsveit, hreint út sagt stórkostleg! 
 
Auk þessara laga hef ég sankað að mér fleiri dúndrandi smellum frá tímabili sem ég vildi að ég hefði verið uppi á... hver man t.d. ekki eftir dúettnum ÞÚ og ÉG!  Get ekki beðið eftir árlegu plötupartýi okkar systkina.. þar gerast hlutirnir!!!
Og enn fremur vil ég þakka þeim manni sem fyrst ákvað að semja texta við lög! Veit ekki með aðra en ég hlusta mikið á textana og oftar en ekki ræðst lagaval mitt eftir skapi hverju sinni og því hvernig textinn hljómar... því hann segir þér jú svo margt!

T.d. áðurnefnt lagið Endurfundir! Stórkostlega hallærislegur texti en hver getur ekki sett sig inní textann.... Hver hefur ekki verið secretly "skotinn" í einhverjum en bara getur ekki sagt það útaf einhverjum ákveðnum ástæðum!??
Merkilegt!!!!!

Elsa Arney -einstakur tónlistarunnandi-


Posted at 6:22 am by arney
(2) höfðu skoðun á málefninu!  

Sunday, December 05, 2004
Heima er best....

Home sweet home, eins og skáldið sagði! blog.central er bull... ekkert fyrir svona reynda html-ara eins og mig... því hef ég haldið aftur á heimahaga á blogdrive.com! Á að sjálfsögðu eftir að setja inn linka og svona en það kemur vonandi einhverntíman með komandi leti.

Elsa - á ferð og flugi um ógöngur veraldarvefsins...


Posted at 4:56 pm by arney
Komdu skoðun þinni á framfæri!  

Previous Page