Entry: Miss Piggy og herra Stam Sunday, September 25, 2005



Eins og mörg ykkar vita er ég þess heiðurs aðnjótandi að vinna í hverfisverslun nálægt heimili mínu!Alltaf sama fólkið sem að verslar þarna, voða heimilislegt, og maður kippir sér nú ekki mikið upp við að afgreiða forsætisráðherrann um vöffludeig og 2 sviðakjamma. Verð ég þó að játa að sjáldan hef ég, þennan 2 og hálfa vetur sem að ég unnið í þessari ágætu verslun, hitt fyrir jafn skemmtilegan hóp af fastakúnnum! Oftar en ekki hef ég þurft að hlaupa af kassanum, inní kjöt til að þurfa ekki skammarlega að skella uppúr fyrir framan þessa ágætu fastakúnna mína.

Fyrst má nefna Miss Piggy, en aumingja konan minnir óneitanlega á svín, ekki vegna þvermáls heldur segir andlitsfallið, þó sérstaklega nefið og örlítill skeggvöxtur allt um þetta viðnefni sem hún hefur fengið hjá mér! Þó að það sé nú ekkert til að tala um og ekkert verra að líkjast Miss Piggy, kom það svo skemmtilega fyrir um daginn að þegar hún ætlar að rétta mér kortið sitt þarf hún eitthvað að sjúga uppí nefið en í stað eðlilegs hljóðs þá hrýnir hún alveg eins og svín! Ég stirðna upp, þykist missa kortið í gólfið, fer undir borð og reyni að hemja hláturinn. Agalega vandræðalegt! Er þó fullviss um að þetta sé hin ágætasta kona!

Sá næsti mun vera líka hinn ágætasti maður. Á þó við þann erfiðleika að stríða að hann stamar nokkuð mikið! (ekkert að því að stama þó og þekki ég fullt af góðu fólki sem stamar) en ekki nóg með að hann stami greyið heldur er hann smámæltari en 6 ára tannlaus stelpa! Einhverra hluta vegna hefur hann ákveðið einn daginn að byrja að reykja, sem er náttúrulega nógu slæmt, en hvað kom fyrir þegar að hann ákvað að tegundin skuli verða Ssssalemm Ssssliiim Lllightttsssss. Hvað var maðurinn að hugsa? Hefði ekki verið auðveldara að velja Kool!

En ég vil þó ekki fjalla um fleiri í þetta skiptið því mamma sagði alltaf að það væri ljótt að gera grín af öðrum og ég neita fara til helvítis!
Annars var helgin fín, tókum Actioanary á laugardaginn, þar sem við Bergmann sýndum snilldar leikhæfileika okkar, og tókum Vallý og Örn Inga í nefið! Rúst! Spurning hvort að við gætum ekki keppt í þessu og grætt pening! Eða bara setja upp show!

En ég ætla að fara að nýta nammidaginn minn, og troða í mig ostum og kexi! Eins og Patrekur systursonur minn myndi orða það. Ég ELSKA osta og kex! Jomm...

Elsa Arney -búðardama- Vil svo koma framfæri hamingjuóskum til Magna og Eyrúnar með kútinn!

   7 comments

Elsa
October 1, 2005   04:11 PM PDT
 
já... greyin... það er nógu erfitt að vera skrítinn þó að maður sé ekki stórskrýtinn!!!!
Eyrún Hrefna
October 1, 2005   06:09 AM PDT
 
Haha, get nú ekki annað en hlegið að Miss Piggy og Hr. Stam. Þau hljóma mjög vel. Annars, sjáumst eftir 2 klst ;)
Elsa
September 28, 2005   03:12 PM PDT
 
það verður bara endurtekning á þessu þar sem að við munum gefa ykkur annan séns!! þið fáið svona hálft spil í forskot!!! HAHAHA
Elsa
September 26, 2005   01:06 PM PDT
 
what an odd theory!!! hmm... ;)
Vally
September 26, 2005   11:01 AM PDT
 
Ég ELSKA lime! Svo var þetta ekkert að taka í nefið, frekar svona að taka í rassgatið!!!en tapið var alfarið Erni að kenna sökum mikilla harðsperra....semsagt þetta var þer að kenna!
Elsa
September 26, 2005   07:11 AM PDT
 
ég bendi þér á miss piggy ef hún er þarna sem kemur mjög oft fyrir! þú verður svo að koma með eitthvað mjög afgerandi undarleg til að komast á þennan blessaða lista. Það er allt of mikið af athyglisverðu fólki þarna hjá mér! hehe ;)
Erla
September 26, 2005   06:15 AM PDT
 
hehe... hvernig ætli þú talir um mig þega ég kem þarna ;) hehe.. ég er reyndar ekki fasta kúnni, kem bara þegar ég veit að þú ert að vinna ;) hehe.. þú kannski lætur mig vita næst þegar þetta lið kemur svo ég geti hlegið með þér ;)
sé þig á miðvikudaginn í Þín verslun! :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments