|
og viti menn... the thing is alive! Já ég hef ákveðið eftir að hafa fjárfest í tölvu nokkurri á dögunum að nú væri kominn tími á ný til að deila með heimsbyggðinni því sem að á daga mína drífur, sem er að sjálfsögðu sem endra nær einstaklega viðburðaríkt! Ég nenni þó ekki að þylja upp það sem að hefur gerst seinustu mánuði því það er ekki það spennandi... enda var ég kornung þá að aldri! Eftir að vera komin langt á leið í þrítugt sé ég heiminn orðið í öðru ljósi og hef einsett mér að reyna að bæta það sem misfarist hefur! hmm... nehh!!! Talandi um það þá vil ég þakka öllum þeim sem sendu mér ástar- og samúðarkveðjur á afmælisdaginn minn! Ég er nú einu ári nær Gullna hliðinu en hef einstaka trú á því að tuttugasta og þriðja afmælisárið mitt komi til með að verða nokkuð gott! Þó svo ég hafi nú alls ekki gefið það opinberlega út þá voru s.s gjafir og blóm afþökkuð og stóð fólk sig vel í þeím málum, nema ástkær bróðir minn stóðst ekki mátið og færði mér úrvals 590.- freyðivín frá vinnustað sínum! takk fyrir það!... það hefði nú samt mátt leggja meiri pening í tappann því þegar klukkan sló 12 átti sko aldeilis að skála en fór ekki betur en svo að tappinn brotnaði og samkvæmisgestir leituðu í óðaönn eftir tappatogara til að hægt væri að væta kverkarnar! Það gekk þó með ágætum og endaði hópurinn í miðbæ reykjavíkur þar sem að dansað var frá á rauða nótt! Annars er næsta helgi farin að heilla eda koma austfirðingar til með að safnast saman á Players á Austfirðingaball til að fagna gáfum, myndarleika og fyndni þessa einstaka kynstofns! og að sjálfsögðu látum við Kelzie okkur ekki vanta og vonumst eftir að sjá sem flesta!!!! Elsa - 23 - |
| Elsa March 29, 2006 02:27 PM PST hehe... þér er fyrirgefið og takk fyrir að muna alla vegna eftir mér þó það væri kannski ekki alveg á réttum tíma!! ;) | ||
| Kári March 28, 2006 11:25 PM PST Ég skammast mín ekkert smá!!!!!! Ég gleymdi afmælinu þrátt fyrir að hafa munað eftir því á föstudeginum, ohhhhhhhhhhh. EN þú færð að sjálfsögðu samúðarkveðjur frá mér og farðu svo að koma í Egilsstaðir city til að tjútta af þér rassinn með mér. Þinn Kári! | ||
| Leave a Comment: |