Entry: þorrablót.... þorrablót.... Monday, January 17, 2005



Jamm... Sunny er ennþá syrgður hérna í litla hjartanu mínu og sökum veðurs hef ég enn ekki getað farið og vitjað hans! Hann birtist mér þó í draumi í nótt, sagði mér að ég þyrfti að halda áfram og vaknaði ég í morgun og það var eins og þungu fargi hafi verið af mér lyft!  Sunny minn hefur það gott, syndir í olíu og búin að fá nýja legu! 

Annars var helgin fín... fór út á föstudaginn.... endaði seinasta kortér næturinnar á 16 ára í Valaskjálf balli þar sem lille sös var snúið í ótal hringi!  Ég hafði nú reyndar lofað sjálfri mér að stíga aldrei fæti inná á 16 ára ball eftir það seinasta... ái....  en loforð eru til að svíkja þau! Right?
Settist í besta tilgangslausasta rauðvínssötri sem ég hef bara smakkað hjá Kára mínum Jósefs á laugardaginn... ekkert að gerast svo við ákváðum að bara sletta úr klaufunum! Stórgott kvöld og býð spennt eftir dauðu kvöldi svo við getum endurtekið leikinn!

Svo bíður mín mjög svo spennt eftir næstu helgi því þá mun leið okkar geðklofasystra liggja í Fagra Fjörðinn kæra... Dararamm... þar sem verður tekið duglega á því á
ÞORRABLÓTI BORGFIRÐINGA
.
... ó hvað litla hjartað mitt slær ótt úr spenningi bara við tilhugsunina!  Ég er búin að lofa sjálfri mér að slá öll seinustu ár út í ógeðslegheitum í drykkju og dúndrandi tilþrifum á dansgólfinu!  Erfitt en markið skal sett hátt!!!

       Elsa -á leiðinni á blót-





   2 comments

Elsa
January 18, 2005   02:53 PM PST
 
já maður var ekki alveg uppá sitt besta sunnudaginn eftir...
Kári Jósefs
January 17, 2005   04:55 PM PST
 
Við verðum samt að slappa aðeins af í rauðvíninu í næsta skipti, þetta var helvíti erfiður sunnudagur :-S

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments