Entry: bara ár í það næsta... Tuesday, January 25, 2005



Helgin er liðin og framundan er heilt ár í næsta Þorrablót...  ó hve langt er að bíða!!
En stórkostlegt skemmtun var það eins og vanalega... étið og drukkið eins og svín, dansað mörgþúsund kílómetra...
Eins og til stóð tókst mér slá út fyrri ár í drykkju.. en það var Helgi Hlynur frændi minn og uppáhalds dansfélagi sem tókst að ná ógeðslegheitunum sem lofað var þetta kvöld, en eftir margra ofurlaga danssyrpu tók utan um hausinn á mér og strauk mér upp bringuna á sér... þið sem þekkið Helga vitið hvernig hann er eftir svona törn!

Ég vil þó þakka honum Helga Hlyni mínum kærlega fyrir stórkostlega dansa...  undanfarin ár höfum við Helgi átt í danskeppni hörku, hæfileika og úthalds... staðan eftir seinasta blót var 125-125... en eftir tilþrif þessa blóts ákváðum við að segja stöðuna jafna, eða 147-147... höfum þó hvorugt hugmynd um hvernig talning stiga fer fram! Ég reyndi að ná forustu með því að taka Orminn góða... en dugði ekki til!! ;)  Annars slógum við víst gleraugun af Þresti í látunum og biðst ég innilegrar fyrirgefningar á því!

Nefndinni, my favorite band, vil ég þakka kærlega fyrir gott ball en það hefði nú verið gaman að heyra Easy Living þarna einhversstaðar! Strákar.. hvað klikkaði??? Annars brilliant as always!!

Anyways... 

Elsa - meistari dansanna-

 

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments